Jólaguðspjallið á svið á Grand Rokk 30. nóvember 2006 12:30 Grand Rokk breytist í leikhús í desember. „
Jósef frá Nasaret er sennilegra með kokkálaðri mönnum fyrr og síðar," segir Lísa Pálsdóttir, útvarpskona og forkólfur leikfélagsins Peðið, sem frumsýnir söngleikinn Jólapera - eða helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk á sunnudag. Peðið hefur starfað á Grand Rokk frá því það setti upp leikritið Lamb fyrir tvo á Menningarhátíð Grand Rokk í fyrra. „Þetta leikrit er eftir Jón Benjamín Einarsson smið, sem maðurinn minn frétti að skrifaði leikrit í laumi og átti nokkur á lager. Við völdum þetta og settum upp. Í hláturskasti var síðan ákveðið að semja söngleik, Barperuna, sem var sýndur á Menningarhátíðinni í ár og í öðru hláturskasti ákváðum við svo að setja upp jólaleik, sem er nú að fara á fjalirnar." Jólapera er verk í léttum dúr þar sem jólaguðspjallið er sagt frá sjónarhorni Jósefs. „Hann skilur ekki upp né niður í tilstandinu yfir einni barnsfæðingu, hvað allir þessir englar og vitringar eru að vilja, enda hefur hann ekki orðið fyrir neinni opinberun," segir Lísa en áréttar að ekki sé verið að gera gys að heilagri ritningu. „Þetta er falleg sýning og fjölskylduvæn, með góðri tónlist. Okkur langaði bara að segja jólasöguna á dálítið gamansaman en græskulausan hátt." Vilhjálmur Hjálmarsson leikstýrir verkinu en Björgúlfur Egilsson, eiginmaður Lísu, og Magnús R. Einarsson útvarpsmaður semja tónlistina og Tómas R. Tómasson Stuðmaður er þeim innan handar á sviðinu. Leikhópurinn samanstendur aðallega af fastagestum Grand Rokk og fara sýningar fram á efri hæð staðarins á hverjum sunnudegi fram að jólum. Lísa Pálsdóttir ákvarðanir um uppsetningar Peðsins eru teknar í hláturskasti. . Magnús Einarsson semur tónlistia við Jólaperu. .
Menning Mest lesið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Einar fékk meira hár en Baldur Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið „Ég er sáttur við það dagsverk“ Menning Grindavík sigursæl erlendis Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira