Bob hótar málssókn og látum 16. desember 2006 09:30 Edie Sedgwick
Hinn 27. desember verður kvikmyndin Factory Girl frumsýnd í Bandaríkjunum en hún fjallar um Edie Sedgwick sem lék í mörgum stuttmyndum eftir Andy Warhol og var honum mikill innblástur. Edie var nokkurs konar Paris Hilton hins þenkjandi manns á sjöunda áratugnum og átti samneyti við marga lykilleikmenn skemmtana- og listalífsins á þeim tíma. Ekkert gæti þó orðið af frumsýningunni því nú hefur tónlistarmaðurinn Bob Dylan hótað málssókn ef myndin verður ekki endurskoðuð. Upphaflega átti Bob að vera persóna í myndinni en sökum lagaflækja og skorts á staðreyndum var nafni persónunnar breytt í Billy Quinn. Í myndinni eiga Edie og Quinn í stuttu ástarsambandi, en eftir að Quinn skilur við Edie leggst hún í fíkniefnaneyslu og að lokum sviptir hún sig lífi. Dylan er alveg æfur yfir þessu og segist ekki ætla að sitja aðgerðarlaus á meðan honum er gefið að sök að bera ábyrgð á dauða manneskju. Lögfræðingar Dylans hafa sent framleiðendum myndarinnar bréf þar sem þeir krefjast þess að myndinni verði breytt, frumsýningu frestað og að persónan Billy Quinn verði fjarlægð að öllu leyti. Enn hafa ekki borist svör við kröfum Dylans, en þeirra er að vænta á næstu dögum. Svarthöfði sjálfur, Hayden Christensen, fer með hlutverk Billy Quinn, Guy Pearce leikur Andy Warhol og breska ungstirnið Sienna Miller leikur Edie. Bob Dylan fer fram á að myndinni verði breytt. .
Mest lesið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Einar fékk meira hár en Baldur Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira