Framtíð mannkyns í húfi 28. desember 2006 10:00 Úr children of men. Clive Owen leikur mann sem hjálpar fyrstu barnshafandi konunni sem fundist hefur í tvo áratugi að flýja land.
Kvikmyndin Children of Men, eða Mannanna börn, með Clive Owen og Julianne Moore í aðalhlutverkum verður frumsýnd annað kvöld í Sambíóunum. Um er að ræða spennutrylli sem gerist í náinni framtíð, árið 2027 nánar tiltekið. Konur geta ekki lengur eignast börn og mannkynið getur þar af leiðandi ekki fjölgað sér. Vonleysið vokir því yfir með tilheyrandi upplausnarástandi þar sem lögleysa og óreiða ráða ríkjum. Á Bretlandi hefur stjórnvöldum tekist að halda ástandinu til haga í krafti hervalds en á kostnað mannréttinda; flóttamenn streyma til landsins en er jafnan smalað í flóttamannabúðir og sendir til baka. Theo (Owen) er fyrrverandi róttæklingur en starfar nú sem skriffinnur hjá hinu opinbera og stendur orðið á sama um allt saman. Dag einn hefur Julian (Moore) samband, fyrrverandi samstarfskona Theos úr röðum róttæklinga, og kynnir hann fyrir Kee, fyrstu barnshafandi konunni í nítján ár. Julian borgar Theo fyrir að útvega Kee vegabréfsáritun svo hægt sé að forða henni úr landi. Hins vegar eru margir reiðubúnir til að leggja mikið í sölurnar til að ná í Kee og áður en langt um líður flækist Theo inn í atburðarás sem gæti kostað hann lífið og mannkynið framtíð. Children of Men er nýjasta mynd mexíkóska leikstjórans Alfonsos Cuarón, sem á að baki myndir á borð við Harry Potter og Fangann frá Azkaban og Y tu maá también (Og mamma þín líka) en fyrir handritið á þeirri síðarnefndu var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna. Myndin byggir á samnefndri skáldsögu eftir enska rithöfundinn P.D. James og þótt hún gerist í náinni framtíð fjallar hún um aðkallandi mál samtímans á borð við flóttamenn, umhverfismál, frjósemi og mannfjölgun. Leikhópurinn er traustvekjandi, auk Owens og Moore fer gæðaleikarinn Michael Caine með stórt hlutverk í myndinni. Owen var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik í aukahlutverki í myndinni Closer og Moore var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bæði aðal- og aukahlutverk árið 2003. Children of Men hefur hlotið afbragðsdóma víðast hvar og ófáir gagnrýnendur vestan hafs hafa nefnt hana sem eina af bestu myndum þessa árs.
Mest lesið Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Gagnrýni Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Lífið Aron segist hættur í ClubDub Lífið Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Lífið Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac Tónlist Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Lífið Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira