Skáldað íslenskt sakamál 28. desember 2006 14:00 Björn Brynjólfur Björnsson. Þreytir frumraun sína á hvíta tjaldinu með Kaldri slóð. Hann tók sér fimm ár í verkið og leggur það bjartsýnn í dóm áhorfenda á morgun.
Spennumyndin Köld slóð verður frumsýnd á morgun. Myndin er fyrsta kvikmynd leikstjórans Björns Brynjúlfs Björnssonar í fullri lengd en hún fjallar um blaðamann sem flækist óvænt í morðmál sem snertir fortíð hans. Björn samdi söguna en Kristinn Þórðarson skrifaði handritið og þeir félagar unnu verkið náið saman og tóku sér fjögur ár í handritsvinnuna. „Við byrjuðum á þessu verkefni fyrir fimm árum á sama tíma og verið var að skrifa mikið af þessum glæpa- og spennubókmenntum sem hafa verið að koma út,“ segir Björn Brynjúlfur og bætir því við að þeir félagar hafi leitast við að skrifa sannfærandi sakamálasögu inn í íslenskan samtíma.Sakamálasagan verður að virka„Þetta er það sama og glæpasagnahöfudnarnir hafa verið að fást við. Að búa til sögu sem virkar í íslenskum samtíma enda fær fólk ekki notið sögunnar ef það rekst á að hún fái ekki staðist en slíkt eyðileggur auðvitað upplifunina af sögunni. Þetta er snóker sem fólk hefur verið að leysa í glæpasögum að undanförnu og okkur er vonandi að takast það líka í bíómyndum,“ segir Björn og tekur undir að velgengni Mýrar Baltasars Kormáks bendi til þess að íslenskar sakamálamyndir hafi fundið sér greiðan farveg að bíógestum. Unnið náið með leikurunumEftir fjögurra ára handritsvinnu gaf Björn sér góðan tíma til þess að slípa handritið með leikurunum. „Að mínu mati skipta tvö lykilatriði máli í kvikmyndagerð að sagan sé góð og leikurinn sé góður og ég lagði mikið upp úr þessu. Við gáfum okkur óvenju mikinn tíma með leikurunum og unnum með persónurnar í þrjá mánuði fyrir tökur án þess að vera beinlínis að æfa handritið.Við sendum leikarana svo heim og leyfðum þeim að láta þetta malla innra með sér áður en við fórum í sex vikna æfingar fyrir tökur. Þá unnum við töluvert með taktinn í handritinu og löguðum línurnar að hverri persónu fyrir sig.“Björn segir þetta verklag hafa komið sér ákaflega vel í framleiðsluferlinu þar sem „leikararnir voru svo vel æfðir að þeir hefðu getað leikið myndina frá upphafi til enda eins og þeir væru á sviði“.Úr auglýsingum í bíómyndirBjörn Brynjúlfur er enginn nýgræðingur bak við tökuvélina þó að Köld slóð sé fyrsta bíómyndin hans en hann er margverðlaunaður auglýsingaleikstjóri og á að baki fjölmarga sjónvarpsþætti. Árið 2004 gerði hann leikna sjónvarpsmynd byggða á Njálu og á árunum 1998 til 2002 gerði hann tólf þætti í sjónvarpsþáttaröðinni Sönn íslensk sakamál sem skiluðu honum Edduverðlaunum.„Reynsla mín af auglýsingagerðinni var góður grunnur fyrir þessa vinnu, ekki síst á sjónræna sviðinu og í vinnsluferlinu.“ Björn bendir jafnframt á að hann sé síður en svo sá fyrsti sem fikri sig úr auglýsingum í bíó og nægir í því sambandi að nefna Hollywoodstórlaxa á borð við bræðurna Ridley og Tony Scott og Alan Parker.„Ég gæti alveg hugsað mér að halda áfram á þessari braut og gera aðra bíómynd. Þetta er skemtileg og gefandi vinna og þó að ég þekki kvikmyndagerðaþáttinn vel þá var vinnan með leikurunum ný fyrir mér og það skemmtilegasta í þessu öllu saman.“Kominn með frumsýningarfiðringKöld slóð verður frumsýnd á morgun og þó að Björn sé tilbúinn til þess að leggja verk sitt í dóm áhorfenda viðurkennir hann fúslega að hann sé kominn með frumsýningarfiðring. „Þetta er svolítið stress, kannski ekki síst vegna þess að þetta er fyrsta myndin mín og fyrsta handrit Kristins sem verður að kvikmynd þannig að ég get ekki neitað því að það sé kominn fiðringur í mannskapinn. En ég er búinn að skila og þetta er komið úr höndum mínum. Nú verður bara að koma í ljós hvort einhver kunni að meta þetta þannig að ég er auðvitað spenntur. Það er aldrei hægt að vita neitt fyrirfram í þessum bransa. Það er engin formúla til þannig að maður rennir blint í sjóinn.“
Mest lesið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Herra Hnetusmjör er söngvari ársins Tónlist Fleiri fréttir Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira