Hagnaður eykst um 135% 17. janúar 2006 22:13 MYND/Stefán
Hagnaður 16 helstu félaganna í Kauphöll Íslands, fyrir utan KB banka, eykst um 135% á milli áranna 2004 og 2005 að mati Greiningadeildar KB banka. Í spá bankans er gert ráð fyrir mun minni aukningu á árinu 2006. Gert er ráð fyrir að hagnaður félaganna verði 114 milljarðar króna á síðastliðnu ári samanborið við tæplega 49 milljarða hagnað þeirra á árinu 2004. Þetta er um 66 milljarða aukning á milli ára. Um er að ræða fimmföldun hagnaðar milli ára sem borin er uppi af miklum gengishagnaði af innlendum og erlendum hlutabréfum félaga í fjármálatengdri starfsemi. Greiningardeild KB banka telur þó að ekki megi búast við jafn mikilli aukningu á árinu 2006 og gerir ráð fyrir að hún verði tæplega 5%. Greiningardeildin spáir um 4% verðbólgu á þessu ári en verðbólga á árinu 2005 var 4,4%, yfir þolmörkum Seðlabanka Íslands. Í greiningu bankans segir einnig að gengi hlutabréfa á síðasta ári hafi verið umfram væntingar og því sé meiri áhætta en oft áður fólgin í fjárfestingu á innlendum hlutabréfum. Þó er gert ráð fyrir að Úrvalsvísitala Kauphallarinnar verði 7000 stig í lok árs en hún er nú rúm 6200 stig.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira