Innlent

Vilja allir hækka laun leikskólakennara

Talsmenn flokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnakosninga telja allir að hækka beri laun leikskólakennara og efla faglegt starf innan leikskólanna með fjölgun menntaðra leikskólakennara. Þetta kom fram á fundi haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Það var Reykjavíkurdeild Félags leikskólakennara sem stóð fyrir fundinum en þar kynntu frambjóðendur stefnu sinna flokka í málefnum leikskóla. Allir voru þeir sammála um að töluverðar framfarir hefðu orðið í málaflokknum í tíð R-listans en engu að síður biðu mörg verkefni á næstu árum.

Talið barst meðal annars að gjaldfrjálsum leikskóla. Allir flokkarnir hafa hann á stefnuskrá sinni nema Sjálfstæðisflokkurinn sem leggur meiri áherslu á að tryggja fyrst öllum vistun fyrir börn sín eftir að fæðingarorlofi lýkur. Fram kom á fundinum að það kosti um tvo milljarða á ári að gera leikskóla gjaldfrjálsa en ekki fengust skýr svör um það á fundinum hvaðan þeir fjármunir ættu að koma.

Umræðan um gjaldfrjálsan leikskóla er nátengd umræðu um leikskólann sem fyrsta skólastigið og töldu talsmenn allra flokka að starfið innan leikskólanna yrði sífellt metnaðarfyllra. Þeir sögðu þó engu að síður mikilvægt að efla enn frekar faglegt starf á leikskólunum og efla tengsl grunn- og leikskóla.

Fram kom að liður í eflingu á faglegu starfi á leikskólum væri að fá fleiri faglærða starfsmenn inn á leikskólana, en eins og kunnugt er plagaði mannekla marga leikskólana í vetur. Til þess að lokka fleiri leikskólakennara til starfa í leikskólum þyrfti að hækka launin enn meira en gert hefði verið nú eftir áramót.

Benti einn fundargesta þá á að samningar við leikskólakennara væru lausir í haust og því verður fróðlegt að fylgjast með hvort þeir sem stjórna borginni eftir kosningar fylgi orðunum eftir með gjörðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×