70 ár á þingi samanlagt 5. október 2006 20:45
Sigríður Anna Þórðardóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi umhverfisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Sigríður Anna er fjórða reynslumikla þingkonan sem dregur sig í hlé fyrir þessar kosningar en þær hafa samtals setið á þingi í sjötíu ár. Það fjölgar í hópi þingkvennanna sem ekki hyggja á frekari þingsetu. Sigríður Anna tilkynnti á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í Valhöll í gær að hún sæktist ekki eftir endurkjöri. Sigríður Anna hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 1991. Samþykkt var á sama kjördæmisráðsfundi að efna til prófkjörs þann 11. nóvember, til að velja á framboðslista flokksins í kjördæminu. Margrét Frímannsdóttir, leiðtogi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi tilkynnti á dögunum að hún ætlaði ekki að halda áfram og sama gildir um Rannveigu Guðmundsdóttur, þingkonu flokksins í Suðvesturkjördæmi. Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því einnig yfir á dögunum að hún myndi ekki bjóða sig fram í væntanlegu prófkjöri. Samtals munu þessar 4 konur hafa setið á Alþingi í 70 ár þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Allar þingkonurnar sem hætta hafa sagt að ákvörðunin sé persónuleg. Enn á eftir að koma í ljós hvort konur koma í kvenna stað eða hvort þetta leiðir til þessað konum fækki á þingi.
Fréttir Innlent Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira