Fjármálaeftirlitið höfðar dómsmál 30. október 2006 18:32 Fjármálaeftirlitið MYND/Vísir
Stjórn Fjármálaeftirlitsins ætlar að höfða dómsmál til að fá úrskurði kærunefndar hnekkt. Kærunefndin taldi að Fjármálaeftirlitinu hefði verið óheimilt að takmarka rétt ákveðinna stofnfjáreigenda í Sparisjóði Hafnarfjarðar við fimm prósent. Í ársbyrjun 2006 komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að virkur eignarhlutur hefði myndast í Sparisjóði Hafnafjarðar í andstöðu við lög. Þannig taldi Fjármálaeftirlitið að ákveðnir aðilar hefðu haft samstarf sín á milli um að kaupa upp og stýra sjóðnum. Fjármálaeftirlitið taldi því að þessir aðilar gætu ekki farið með meira en 5% atkvæða og takmarkaði atkvæðisrétt þessara stofnfjáreigenda við fimm prósent. Hægt er að skjóta ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins til kærunefndar samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Það gerðu stofnfjáreigendurnir og úrskurðaði kærunefndin í ágúst á þessu ári að ekki hefði verið sannað að þessir aðilar hefðu haft samstarf um kaup og þess vegna hefði Fjármálaeftirlitinu verið óheimilt að takmarka atkvæðisrétt þessara einstaklinga í sjóðnum við 5% hámark. Fjármálaeftirlitið er ósammála niðurstöðu kærunefndar og hefur ákveðið að fara með málið fyrir dómstóla. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að málið reyni á mikilvæg atriði fyrir íslenskan fjármálamarkað svo sem á hlutverk og getu Fjármálaeftirlitsins til að stuðla að traustri fjármálastarfsemi hér á landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira