Nylon í Smáralind 10. nóvember 2006 11:15
Nylon flokkurinn í boði KBbanka hefur ákveðið að boða til tónleika í Vetrargarðinum í Smáralind Laugardag 18. nóvember nk. klukkan 15:00. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að þriðja platan þeirra, sem ber nafnið Nylon, kemur út í næstu viku. Á plötunni er að finna nokkur af vinsælustu lögum ársins. Þar á meðal er Losing a friend sem náði efsta sætinu bæði á Íslenska vinsældalistanum og Netlistanum hjá tónlist.is. Lagið fór síðan eins og frægt er orðið í 29. sæti breska vinsældalistans. Closer náði líka efsta sætinu á tónlist.is. Sweet Dreams er einnig á plötunni en það fór í efsta sætið á popp danslistanum í Bretlandi í september. "Við stelpurnar erum mjög spenntar fyrir þessu. Við höfum aðeins komið fram einusinni á Íslandi á þessu ári og þar af leiðandi er mikil tilhlökkun innan hópsins." sagði Alma Guðmundsdóttir af þessu tilefni. "Við höfum komið fram fyrir fleiri þúsundir enskra áhorfenda en það jafnast ekkert á við að koma fram og syngja hérna heima" KOMNAR HEIM EFTIR LANGA OG STRANGA VIÐVERU Í BRETLANDI Nylon flokkurinn kláraði tónleikaferð með dúettnum Journey South í lok október og stelpurnar eru núna komnar heim eftir langvarandi dvöl í Bretlandi. "Þetta ár er búið að vera algjört ævintýri og það er frábært að fá tækifæri til að gera það sem við erum að gera. Um leið söknum við náttúrulega vina og vandamanna svo það er voðalega notalegt að vera komnar heim í smá tíma." bætti Alma við. "Við erum sérstaklega þakklát KB Banka fyrir að gera þessa hugmynd okkar að útgáfutónleikum að veruleika. Það er rosalega gaman að geta boðið öllum frítt á þessa tónleika. Það væri ekki hægt án þeirra framlags" sagði hún að lokum. Sérstakur gestur á tónleikunum verður Idolstjarnan Bríet Sunna Valdemarsdóttir sem vann sig inní hug og hjörtu landsmanna í síðustu Idol keppni. Plata Bríetar er ein sú vinsælasta á landinu um þessar mundir. Tónleikarnir í Smáralind laugardaginn 18. nóvember eru þeir fyrstu sem stúlkurnar koma fram á í ár. Stelpurnar í Nylon eiga að baki alveg ótrúlegt ár. Í Janúar fóru þær út og fóru í tónleikaferð sem var stíluð inná skóla og félagsmiðstöðvar í Bretlandi. Seinna fylgdi tónleikaferð með Westlife svo Girls Aloud og nú síðast strákarokkbandinu McFly. Samtals hefur flokkurinn komið fram á um það bil 74 stórtónleikum í Bretlandi en þar á meðal hafa stelpurnar hafa komið fram 7 sinnum á Wembley Arena í London. Það er KB Banki sem býður landsmönnum frítt á tónleikanna í Smáralind og til að koma á móts við þá sem ekki eiga heimagengt þann laugardag þá hefur KB Banki fengið Nylon flokkinn til að heimsækja 12 útibú KB Banka í nóvember og desember og er dagskráin sem hér segir: 20. nóv Selfoss, 21. nóv Egilsstaðir, 22. nóv Akranes, 23. nóv Borgarnes, 27. nóv Stykkishólmur, 28. nóv Sauðárkrókur, 29. nóv Akureyri, 30. nóv Hella, 4. des Reykjanesbær, 5. des Árbær, 6. des Garðabær, 7. des Kópavogur 8. des Grafarvogur, 9. des Mosfellsbær
Lífið Menning Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni Lífið samstarf Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Sjá meira