Tónlist

Ein lang­lífasta tón­listar­há­tíð landsins hefst í sau­tjánda sinn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Abul Mogard kemur fram á hátíðinni í ár.
Abul Mogard kemur fram á hátíðinni í ár. Aðsend

Tónlistarhátíðin Extreme Chill hefst á morgun en hún fer fram í Reykjavík dagana 2.–6. september. Þetta er 17. árið sem hátíðin er haldin.

Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni. Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna, þar á meðal: Dj Krush, Abul Mogard, Arovane, Perila, Ulla, Ronja, Reptilicus, Youth (Martin Glover), Rafael Anton Irisarri, Martina Bertoni, Dj Flugvél og Geimskip, YPY og fleiri.

Hátíðin mun eiga sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni: Gamla Bíó, Iðnó, Tjarnarbíói og Space Odyssey.

Extreme Chill hátíðin er orðin ein af langlífustu tónlistarhátíðum Íslands enda hefur hún verið starfandi óslitið síðustu 16 ár. Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög mikilvægur partur af tónlistarsenu Íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunakennda tónlist, raf- og sveimtónlist. Hátíðin og starfið í kringum hana hefur leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis og samstarfa við bæði erlenda og innlenda tónlistarmenn, að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar,“ segir Pan Thorarensen skipuleggjandi í samtali við Vísi.

Marissa Patrice Leitman er frá Bandaríkjunum. Aðsend

Hann segir að um sé að ræða fimm daga tónlistarveislu þar sem bæði innlendir og erlendir tónlistarmenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru.

„Þetta er einstakur viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík,“ segir Pan.

Hátíðarpassinn kostar 19.900 krónur og gildir á alla 5 dagana. Einnig er hægt að nálgast dagsmiða fyrir hvern dag. Miðasala er inni á midix.


Tengdar fréttir

Raf­tón­listar­hátíðin Extreme Chill haldin í sex­tánda sinn næstu helgi

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í sextánda sinn í Reykjavík dagana 3.-7. september. Meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni í ár eru John Maus, Romeo Poirier, Antonina Nowacka og Patricia Wolf. Hátíðin fer fram á sex stöðum í miðbænum og verður skemmtistaðurinn Húrra enduropnaður sérstaklega fyrir hátíðina.

Margar milljónir í menninguna

Hátt í hundrað verkefni hlutu styrk úr borgarsjóði á sviði menningarmála, en 225 umsóknir bárust í haust um styrki sem hljóða upp á tæplega 390 milljónir króna. Útnefning Listhóps Reykjavíkur 2025 fór fram í Iðnó í dag.

Tónlistarhátíðin Xjazz snýr aftur í Iðnó um helgina

Tónlistarhátíðin XJAZZ Reykjavík fer fram um helgina,10. til 11. janúar, og er samstarfsverkefni XJAZZ Berlín og Extreme Chill hátíðarinnar. Pan Thorarensen skipuleggur hátíðina. Hann segir alla tónleika sitjandi og það verði kaffihúsa- og kósý stemning í Iðnó alla helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.