Ég verð heima um jólin 21. nóvember 2006 14:36
Geisladiskurinn Ég verð heima um jólin með Kvartett Kristjönu Stefáns er kominn út í nýrri útgáfu, en hann kom fyrst út fyrir áratug og seldist þá fljótlega upp. Hér er um að ræða jazztónlist með jólasniði, en kvartettinn skipa Kristjana Stefánsdóttir, söngur, Vignir Þór Stefánsson, píanó, Smári Kristjánsson, kontrabassi og Gunnar Jónsson, trommur. Öll lögin á diskinum eru erlend nema íslenska þjóðlagið Hátíð fer að höndum ein, en íslenskir textar eru m.a. eftir Pál Óskar Hjálmtýsson, sem syngur dúett með Kristjönu í laginu Góða nótt, og leikkonuna Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur. Einnig syngja Emilíana Torrini og Soffía Stefánsdóttir bakraddir. Heimavöllur Kvartetts Kristjönu Stefáns er Selfoss og nágrenni og þar á hann tryggan aðdáendahóp. Þar hefur Kvartettinn staðið fyrir árlegum jóladjassi. Högni Sigþórsson hannaði nýtt umslag fyrir geisladiskinn, sem Dimma ehf. gefur út og dreifir í verslanir.
Mest lesið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Lífið Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Fleiri fréttir Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira