Úrskurðar um vitnisburð að vænta fyrir hádegi 6. desember 2006 11:18 MYND/365
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur kveður upp úr um það klukkan 11. 45 hvort Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, skuli bera vitni fyrir dómnum í tengslum við ákæru fimm aðila tengdum Baugi um að þeir séu vanhæfir til að fara með ákærur á hendur Baugsmönnum vegna meintra skattabrota þeirra. Málið var tekið fyrir í morgun, en í þessum anga Baugsmálsins hefur hluverkaskipanin snúist við þar sem Baugsmenn eru í hlutverki sóknaraðila og yfirmenn ríkislögreglustjóra verjast. Lögfræðingur Baugsmanna sagði í morgun fyrir dómi að ummæli Haraldar Johannessen á blaðamannafundi 12. október árið 2005 gæfu til kynna að yfirmenn efnahagsbrotadeildar hefðu fyrir fram myndað sér skoðun á sekt Baugsmanna. Haraldi og Jóni H. B. Snorrasyni væri því skylt að koma fyrir dóm og svara spurningum um meint vanhæfi sitt við rannsókn á meintum skattabrotum Baugsmanna. Jón H.B. Snorrason sagði hins vegar að það gengi ekki að snúa málinu þannig að rannsóknaraðili bæri vitni í málinu. Þá benti hann á að blaðamaður væri ábyrgur fyrir þeim ummælum sem höfð hefðu verið eftir þeim í Blaðinu. Sem fyrr segir kveður dómari upp úrskurð kl. 11.45 hvort Jóni og Haraldi beri að koma fyrir dóminn og gefa skýrslu en þess ber að geta að þeim úrskurði má áfrýja til Hæstaréttar og til þess hafa báðir aðilar þrjá daga. Það er því ekki víst að málið verði leitt til lykta í dómssölum í dag.
Baugsmálið Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Sjá meira