Innlent

Tjónið á Sel­tjarnar­nesi hlaupi lík­lega á milljónum

Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa
Ásmundur segir málið enn til rannsóknar.
Ásmundur segir málið enn til rannsóknar. Samsett

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu hafa fengið tilkynningu snemma morguns um skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi og þar í kring. Hann segir um 30 bíla hafa orðið fyrir tjóni og ýmist hafi verið búið að brjóta eina eða tvær rúður í bílunum. 

„Þetta mál er til rannsóknar hjá okkur núna og verið er að vinna hörðum höndum að því að upplýsa það.“

Ásmundur segir lögreglu ekki vita hvort einn eða fleiri hafi verið að verki en hann biðlar til fólks að athuga hvort það eigi myndbandsupptökur úr bílum eða heimilum sem gætu varpað ljósi á málið og koma þeim til lögreglu. Hann segir tjónið líklega hlaupa á einhverjum milljónum.

Ekki langt síðan lögregla rannsakaði rispur á bílum

Hann segir álíka mál hafa komið upp áður og það sé ekki langt síðan lögregla glímdi við eignaspjöll í Vesturbæ þar sem bílar voru rispaðir.

Rætt var í morgun á Vísi við Magnús Benediktsson, forseta bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi, og eiginkonu hans Hildi Sif Hilmarsdóttur sem vöknuðu í morgun við skilaboð frá nágranna sínum um að búið væri að brjóta rúður á bílum við heimili þeirra.

„Ég stekk út á sloppnum og kíki á þetta og þá sjáum við að það er búið að brjóta rúður á nokkrum bílum. Svo kemur í ljós þegar fleiri nágrannar fara út að tjónið er töluvert umfangsmeira. Þetta eru hátt undir þrjátíu bílar sem urðu fyrir barðinu,“ sagði Magnús í samtali við fréttastofu.


Tengdar fréttir

Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda

Bílar hafa verið rispaðir í að minnsta kosti þremur hverfum Reykjavíkur undanfarna daga. Íbúi í Vesturbæ segir ljóst að um mikið tjón sé að ræða fyrir íbúa en sjálfur greiddi hann 150 þúsund krónur fyrir viðgerð vegna hakakross sem rispaður var á bíl hans. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×