Viðskipti erlent

Bandaríkjamenn og Kínverjar ná sáttum

Stjórnvöld í Kína hafa sæst á að breyta gengisstefnu sinni, m.a. til að að færa það nær gengi bandaríkjadals með það fyrir augum að minnka viðskiptahalla Bandaríkjanna. Þetta var niðurstaðan að loknum fundi bandarískrar sendinefndar sem fór áleiðis til Kína í vikunni til fundar við ráðamenn.

Innflutningur á vörum frá Kína til Bandaríkjanna hefur aukist gríðarlega síðustu misserin, ekki síst vegna lágs gengis kínverska júansins gagnvart bandaríkjadal.

Bandarískir framleiðendur hafa löngum gagnrýnt gengisstefnu Kínaverja og sagt, að gengi júans sé haldið lágum til að auka útflutning, ekki síst til Bandaríkjanna. Þetta geri fyrirtækjum í Bandaríkjunum erfitt fyrir, að þeirra mati.

Viðskiptahalli Bandaríkjanna gagnvart Kína stefnir í að nema 229 milljörðum bandaríkjadala eða 15.917 milljörðum íslenskra króna. Fari svo, hefur hann aldrei verið meiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×