Bauer mætir sterkur til leiks 16. janúar 2007 10:00 Kiefer Sutherland leikur uppgefinn Jack Bauer eftir erfiða dvöl í Kína en hann þarf sem fyrr að taka á honum stóra sínum í endalausri baráttu við hryðjuverkamenn.
Fyrstu fjórar klukkustundirnar í sjötta sólarhringnum í lífi hryðjuverkamannabanans Jack Bauer eru sýndar í tveimur tvöföldum þáttum í bandarísku sjónvarpi á sunnudags- og mánudagskvöld. The New York Times birti gagnrýni um þessa fjóra 24-þætti fyrir helgi og miðað við þann dóm er óhætt að segja að nýja þáttaröðin lofi góðu. Sólarhringurinn hefst á því að hópur sjálfsmorðssprengjuárásarmanna sprengja upp strætisvagna og neðanjarðarlestir víðs vegar um Bandaríkin. Í framhaldinu kemur í ljós að mikil ógn vofir yfir landinu og það er því ekki annað til ráða en að fá Jack Bauer til þess að skakka leikinn. Þegar skilið var við Bauer í lok fimmtu þáttaraðar var hann á leið í kínverskt fangelsi en bandarísk yfirvöld fá hann lausan gegn háu gjaldi og hann tekur til óspilltra málanna. Gagnrýnandi blaðsins segir þættina enn halda góðum dampi og þeir séu merkilega ferskir. Þessir fjóra þætti bendi jafnvel til þess að nýja serían verði sú besta hingað til. Jack er þó ekki í toppformi sjálfur, er laskaður eftir illa meðferð í Kína og er fullur efasemda um að hann sé starfi sínu vaxinn. Hann þarf í ofanálag að þola kunnuglegt skilningsleysi æðstu stjórnenda, sem virðast seint ætla að læra að taka mark á hugboðum hetjunnar. Íslenskir aðdáendur Bauers þurfa svo ekki að bíða lengi eftir að fá að njóta samvista við kappann en sýningar á 24 hefjast á Stöð 2 í lok janúar.
Mest lesið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira