700 milljónir í klám á tímann 27. mars 2007 10:00 Jenna Jameson lepur líkast til ekki dauðann úr skel. Jenna er ein af best launuðu klámmyndaleikkonum í heimi.
Andstaðan við klám fer vaxandi hér á landi og víðar. En svo virðist sem þessi andstaða eigi við ofurefli að etja ef marka má niðurstöður vefsíðunnar Top Ten Reviews. Samkvæmt fréttavef Ekstra Bladets er 700 milljónum eytt í klám á hverri klukkustund um allan heim. Þetta þýðir að á hverri sekúndu fara í kringum 200 þúsund íslenskar krónur á hverri sekúndu í eitthvað sem tengist klámiðnaðinum beint eða óbeint. Og það sem meira er; þessar tölur fara síst lækkandi heldur hækka ef eitthvað er. Heimsveltan á klámi, hvort sem það er á netinu eða sölu mynda, er því í kringum sex þúsund milljarðar íslenskra króna. Hvergi er framleitt jafn mikið af klámi og í Bandaríkjunum. Tæplega níutíu prósent allra klámsíðna eru bandarískar og frá bandarískum klámframleiðslufyrirtækjum koma fleiri klámmyndir en framleiddar eru í nokkru öðru landi. Titlunum fjölgar með ári hverju en árið 2005 voru til að mynda framleiddar fimmtán þúsund klámmyndir í Bandaríkjunum en árið þar áður voru rúmlega tíu þúsund titlar gefnir út. Þessi ört vaxandi útgáfa helst þó ekki í hendur við þá staðreynd að sala á myndböndum hefur dregist lítillega saman. Breskur klámiðnaður er sagður vera í hvað mestum vexti á netinu og frændur okkar í Svíþjóð og Danmörku halda uppi merkjum klámsins á Norðurlöndum en löndin tvö eru meðal tuttugu öflugustu klámmyndaframleiðenda í heiminum. Á toppnum tróna enn sem fyrr Bandaríkin en fast á hæla þeirra fylgja lönd á borð við Brasilíu og Holland.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira