Viðskipti innlent

Krónan sterk

Gengi krónu mun haldast hátt svo lengi sem vaxtamunur minnkar ekki að neinu marki, samkvæmt Greiningu Glitnis. Með áhrifum sínum á væntingar um vaxtamuninn hafa lækkandi verðbólga, lágar hagvaxtartölur og ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar dregið einhvern þrótt úr því styrkingarferli sem einkenndi gengisþróunina í apríl og maí.



Þrátt fyrir það telur greiningardeildin að krónan muni áfram haldast sterk. Það verði ekki fyrr en bratt vaxtalækkunarferli Seðlabankans færist nær í tíma að gengi krónunnar fari að lækka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×