Viðskipti innlent

Kaupþing selur um þrettán milljarða „samúræjabréf“

Kaupþing gefur út 25 milljarða jena í Japan á mun betri kjörum en fengust við fyrstu skuldabréfaútgáfu bankans í fyrrahaust.
Kaupþing gefur út 25 milljarða jena í Japan á mun betri kjörum en fengust við fyrstu skuldabréfaútgáfu bankans í fyrrahaust.

Eggert Þór Aðalsteinsson

skrifar



Kaupþing horfir í vaxandi mæli til skuldabréfaútgáfu í Asíu. Japan er orðið einn af mörgum hornsteinum í fjármögnun bankans en fyrr á árinu fékk Kaupþing lánshæfismat frá ROI, japönsku lánhæfismatsfyrirtæki. Bankinn greinir frá „samúræja­útgáfu“ í Japan í dag þar sem seld voru skuldabréf fyrir um 25 milljarða jena, um 12,5 milljarða króna, til fjárfesta en kjörin lágu ekki fyrir við gerð þessarar fréttar.



Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar Kaupþings, segir að vel hafi gengið að sækja lánsfé til Japans. „Þetta er hluti af áhættudreifingu á okkar fjármögnun að sækja inn á nýja markaði. Við viljum kroppa smá upphæðir hér og þar án þess að hafa of mikil áhrif á kjörin á markaðnum.“ Hann bendir á að kjörin hafi batnað mikið frá því í september þegar Kaupþing fór í sínu fyrstu útgáfu í Japan sem nam fimmtíu milljörðum jena. Breytingar á markaðsaðstæðum valda þessu en einnig er Kaupþing orðið þekktara nafn meðal japanskra fjárfesta og hefur japanskt lánshæfismat í vasanum.



Guðni segir að Kaupþing vilji sækja fjármögnun inn í Asíu. Indland, Kína og Suður-Kórea eru í sigtinu hjá Kaupþingsmönnum, meðal annars til að fylgja eftir starfseminni í Mið-Austurlöndum. Fyrr á árinu fór bankinn í fyrsta skipti inn í Kanada.



Kaupþing hefur selt víkjandi skuldabréf að upphæð 250 milljónir evra, um 21 milljarður króna, til 66 fjárfesta. „Útgáfan er fyrst og fremst gerð í þeim tilgangi að mæta vexti í vaxandi banka,“ segir Guðni. Bréfin teljast með eiginfjárþætti A (Tier 1) og bera 6,75 prósenta fasta vexti án lokagjalddaga. Þau eru þó innkallanleg af hálfu útgefanda að fimm árum liðnum. „Við gerum þetta reglulega að bæta við víkjandi skuldabréfum. Markaðsaðstæður hafa verið góðar á síðustu vikum og því létum við slag standa.“



Markmið Kaupþings er að eiginfjárhlutfall A sé yfir átta prósentum en það var vel yfir þeim mörkum við lok fyrsta ársfjórðungs. Guðni segir að eiginfjárhlutfallið hækki um 0,8 prósentustig.

Fjórir bankar, Citigroup, Credit Suisse, Deutsche Bank og HSBC, önnuðust útgáfuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×