Bourne kemst nær 23. ágúst 2007 08:00 Hundeltur Jason Bourne er kominn á sporið um hvar rætur hans liggja og þá er fjandinn laus.
Minnislausi njósnarinn Jason Bourne snýr aftur í þriðju myndinni en hún var frumsýnd í gær. Að þessu sinni virðist eitthvað vera farið að rofa til hjá honum því í síðustu tveimur myndum hefur Bourne fengið einhver svör um hvaðan hann er og hver hann var en þetta hefur ekki reynst honum fullnægjandi. Og því ræðst hann í þriðja sinn að rótum sínum og nú situr Bourne í bílstjórasætinu. Leikstjóri Bourne Ultimatum er hinn virti Paul Greengrass en fjöldi stórleikara leggur Matt Damon lið sem bregður sér í líki Bourne í þriðja sinn. Meðal þeirra eru David Strathairn, Joan Allen, Scott Glenn og Albert Finney. Jason Bourne er hugarfóstur rithöfundarins Robert Ludlum sem á sér dyggan aðdáendahóp hér á landi. Þrátt fyrir að hafa verið líkt við sjálfan James Bond eru hlutskipti þeirra tveggja ákaflega ólík. Bourne berst með berum höndum og hefðbundnum skotvopnum á meðan Bond fær oft aðstoð frá heldur ólíklegum og óraunverulegum hjálpartækjum. Reyndar lét Matt Damon hafa eftir sér að James Bond væri ekki lengur konungur leyniþjónustumannanna heldur hefði Bourne tekið við af honum. Kvikmyndirnar þrjár um Bourne hafa skilað háum fjárhæðum í kassann fyrir framleiðendur myndanna og því verður erfitt að ímynda sér að fjórða myndin verði ekki að veruleika. DVD-útgáfan af Bourne Supremacy seldist til að mynda í tuttugu milljónum eintaka í Bandaríkjunum og halaði inn 500 milljónum dollara í aðsókn á heimsvísu sem samsvarar 32 milljörðum í kassann. Bourne Ultimatum hefur þegar slegið í gegn vestanhafs og því skyldi ekki útiloka að hún slá forverum sínum við í gróða.
Mest lesið „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Tónlist Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira