Viðskipti innlent

Lítilmagninn í mynddiskastríðinu

hdvmd spilari
hdvmd spilari

Flestir vita af keppni HD DVD og Blu-Ray mynddiskastaðlanna um peninga neytenda, en færri vita af þriðja keppandanum í stríðinu, HD VMD. Fyrirtækið New Medium Enterprises (NME) hefur þróað disk sem notar hefðbundna DVD-tækni en hefur nóg geymslupláss fyrir háskerpuefni eins og er á HD DVD og Blu-Ray diskum.

Í stuttu máli virkar tæknin þannig að fleiri lög (e. layers) eru á diskunum en á venjulegum DVD-diskum, og leysirinn er rauður í stað þess bláa sem hinir háskerpudiskarnir nota. Þannig kemst meira fyrir á hverjum diski, en þeir eru ódýrari í framleiðslu.

Alexandros Potter, varaforstjóri NME í Bandaríkjunum, segir fyrstu HD VMD spilarana koma á markað á Íslandi í nóvember eða desember, en þeir verða kynntir í Evrópu í næstu viku. Ætlunin sé að selja spilarana á mun lægra verði en aðrir háskerpuspilarar fást á, eða undir tvö hundruð dollurum (12.000 krónum). Algengt verð á Blu-Ray eða HD DVD spilara er um sex hundruð dollarar (38.000 krónur).

Til þess að spila háskerpumynd þarf ekki aðeins spilara heldur myndina sjálfa, og flest stærstu kvikmyndafyrirtæki heims hafa samið við aðstandendur HD DVD eða Blu-Ray (eða báða) um dreifingu sinna mynda á þeirra diskum. Alexandros segir að NME semji þess í stað við útgefendur kvikmynda í hverju landi, sem hafi rétt á að dreifa myndum á hvaða formi sem þeir kjósa.

„Við höfum hitt fólk frá Senu, Myndformi og Sammyndum varðandi myndir sem þau hafa dreifingarrétt á, og erum við það að semja við Myndform. Okkar markmið er að gera þeim sem hafa keypt flatskjái kleift að nálgast háskerpuefni á viðráðanlegu verði, því hinar lausnirnar eru einfaldlega allt of dýrar,“ segir hann. „Við gerum okkur grein fyrir því að við erum lítilmagninn í þessu stríði, en ég held að það geti komið sér vel fyrir okkur.“


Tengdar fréttir

Maturinn borinn fram á járnbraut

Þýskur maður hefur opnað fyrsta sjálfvirka veitingastað heims í borginni Nürnberg. Á staðnum eru engir þjónar, afgreiðslumenn eða gjaldkerar. Matarpantanir fara allar fram með snertiskjám á borðunum og réttirnir eru bornir fram með hjálp járnbrautar sem liggur frá eldhúsinu á efri hæðinni niður í salinn á neðri hæðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×