Viðskipti erlent

LSE styrkir varnirnar gegn yfirtöku Nasdaq

LSE.
LSE. Mynd/AFP

Breska kauphöllin í Lundúnum (LSE) býst við 180 prósenta aukningu í hlutabréfaveltu á markaðnum fram á næsta ár. Þá hefur kauphöllin í hyggju að kaupa eigin hlutabréf fyrir 250 milljónir punda eða 34,5 milljarða íslenskra króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn kauphallarinnar hefur sent frá sér með það að augnamiði að styrkja stöðu sína gegn hugsanlegri yfirtöku bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq.

Nasdaq reyndi á síðasta ári að gera yfirtökutilboð í bresku kauphöllina en stjórn LSE felldi það jafnharðan á þeim forsendum að það endurspeglaði ekki framtíðarhorfur markaðarins. Í kjölfarið hóf Nasdaq óvinveitt yfirtökuferli á kauphöllinni og fer nú með 28,75 prósent bréfa í henni.

Bandaríski markaðurinn hefur jafnframt gert hluthöfum 2,7 milljarða punda eða ríflega 370 milljarða króna tilboð í bréf þeirra. Tilboðið var í síðustu viku framlengt til 26. janúar næstkomandi. Stjórn LSE hefur hins vegar þrýst á hluthafa kauphallarinnar að halda í bréf sín.

Nokkrir hlutabréfamarkaðir, þar á meðal þýska kauphöllin í Frankfurt og Euronext, hafa á síðastliðnum tveimur árum sóst eftir því að kaupa og renna saman við LSE. Stjórn LSE hefur hins vegar vísað öllum slíkum tilburðum á bug. Ásókn í bréf kauphallarinnar hefur keyrt gengi hennar upp en virði bréfa í henni hefur þrefaldast í verði á síðastliðnum tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×