Tap í fyrsta leik hjá Webber 18. janúar 2007 12:09 Chris Webber skoraði 2 stig á 15 mínútum í fyrsta leik sínum fyrir Detroit NordicPhotos/GettyImages
Utah Jazz eyðilagði í nótt frumraun Chris Webber með Detroit Pistons, sem einnig endurheimti leikstjórnandann Chauncey Billups úr meiðslum. LA Lakers vann góðan útisigur á San Antonio og Cleveland steinlá fyrir Portland á útivelli. Utah stöðvaði lengstu taphrinu sína á tímabilinu með naumum 100-99 sigri í Detroit. Deron Williams skoraði 31 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Utah en Chauncey Billups skoraði 26 stig fyrir Detroit eftir að hafa misst úr 8 leiki. Chris Webber kom lítið við sögu í leiknum. LA Lakers vann mikilvægan sigur á San Antonio á útivelli 100-96. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers en Tim Duncan skoraði 26 stig fyrir San Antonio. Cleveland steinlá í Portland 94-76 þar sem LeBron James skoraði 23 stig fyrir Cleveland en Zach Randolph 26 og hirti 12 fráköst hjá Portland. Phoenix vann 11. leikinn í röð þegar liðið skellti Houston á útivelli 100-91, en Houston var án Yao Ming og Tracy McGrady. Amare Stoudemire skoraði 22 stig fyrir Phoenix en Rafer Alston 29 fyrir Houston. Washington lagði New York naumlega 99-98 þar sem Caron Butler skoraði 27 stig fyrir Washington en Quentin Richardson setti 35 stig fyrir New York. Toronto lagði Sacramento 101-85. Mike Bibby setti 21 stig fyrir Sacramento en Mo Peterson skoraði 22 stig fyrir Toronto. New Jersey lagði Charlotte á útivelli 92-85. Vince Carter skoraði 26 stig fyrir New Jersey en Raymond Felton skoraði 18 stig fyrir Charlotte. Chicago lagði Milwaukee á útivelli 99-90. Andres Nocioni skoraði 21 stig fyrir Chicago en Ilyasova skoraði 22 stig fyrir Milwaukee. Atlanta burstaði Minnesota á útivelli 105-88. Joe Johnson skoraði 29 stig fyrir Atlanta en Mark Blount skoraði 16 stig fyrir Minnesota. Memphis lagði Philadelphia 118-102 í beinni á NBA TV. Mike Miller skoraði 30 stig fyrir Memphis en Kyle Korver skoraði 30 fyrir Philadelphia. Loks vann LA Clippers góðan 115-109 sigur á undirmönnuðu liði Golden State sem stóð í stórum leikmannaskiptum í gær, sem nánar verður farið út í hér á Vísi í dag. Elton Brand skoraði 27 stig og hirti 11 fráköst fyrir Clippers en Kelenna Azubuike og Monta Ellis skoruðu 28 stig fyrir Golden State.
NBA Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira