Viðskipti erlent

Sátt um launagreiðslur Wal-Mart

Við eina verslun Wal-Mart í Bandaríkjunum.
Við eina verslun Wal-Mart í Bandaríkjunum.

Sátt hefur náðst á milli bandarisku verslanakeðjunnar Wal-Mart og stjórnvalda vestanhafs að verslanakeðjan greiði tæplega 87.000 starfsmönnum fyrirtækisins samstals 33 milljarða bandaríkjadali, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna, afturvirk laun fyrir ógreidda yfirvinnu.

Samkvæmt samkomulaginu frá jafnt fyrrverandi sem núverandi starfsmennirnir, sem unnið hafa hjá verslanakeðjunni frá 1. febrúar árið 2002 til 19. febrúar á þessu ári greiðslur fyrir fyrirtækinu. Samkomulagið nær einungis til þeirra sem unnið hafa hjá keðjunni í Bandaríkjunum og í Puerto Rico.

Í tilkynningu sem Wal-Mart sendi frá sér í dag kemur fram að ákveðið hafi verið að greiða starfsmönnunum afturvirk laun eftir að villa kom upp í skráningakerfi fyrirtæksins. Hafi forsvarsmenn fyrirtækisins tilkynnt stjórnvöldum í Bandaríkjunum um málið og hafi viðunandi niðurstaða fengist í málinu.

Jafnframt segir í tilkynningunni að þegar villan fannst hafi komið í ljós að fyrirtækið hafi ofgreitt allt að 215.000 starfsmönnum verslanakeðjunnar laun. Fyrirtækið ætlar hins vegar ekki að krefja starfsfólkið um launin til taka, að sögn Wal-Mart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×