Obama blottar sig, átakanleg kvennakúgun, Hirsi Ali 9. mars 2007 19:54 Oft er maður steinhissa yfir því hvað pólitíkin í Ameríku er á lágu plani. Nú er hinn bráðefnilegi Barak Obama búinn að læra að beygja sig undir gyðingalobbíið. Í ísraelska dagblaðinu Ha´aretz stóð að hann hefði "tekið jafn sterkt til orða og Clinton, sýnt jafn mikinn stuðning og Bush og verið jafn vinsamlegur og Giuliani". Áheyrendur við þetta tilefni voru auðugir gyðingar. Obama sagði að hann vildi að haldið yrði áfram að þróa eldflaugakerfi með Ísraelsmönnum svo þeir gætu varist árásum frá Gaza. Þar hafa Palestínumenn náttúrlega feikilegt vopnabúr! Ekki hafði hann uppi eitt gagnrýnisorð á Ísrael - nefndi ekki að Ísraelar drápu 660 Palestínumenn í fyrra, þar af 141 barn. En svona telja bandarískir stjórnmálamenn sig þurfa að gera ef þeir ætla að eiga von á að ná kosningu sem forseti. Hillary Clinton hefur margoft lýst yfir eindregnum stuðningi við Ísrael - og komið með margar heimskulegar og óheiðarlegar staðhæfingar af því tilefni. Það má vera að þetta sé hinn pólitíski veruleiki vestra. En ómerkilegt er það. Á sama tíma les maður í fréttum að farið sé að gera aðsúg að mannvininum Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, bara af því hann hefur farið til Palestínu og séð ástandið með eigin augum. Um þetta hefur Carter skrifað bók þar sem hann segir sannleikann - nefnilega að Ísrael er ofbeldisinnað apartheidríki sem beitir alls konar óþverrabrögðumtil að leggja undir sig land Palestínumanna. Það er staðreynd sem ekki er hægt að komast undan. Svo les maður annað veifið þvælu um að andsemítismi færist í vöxt á Vesturlöndum. Jú, kannski gerir hann það. En þá fyrst og fremst sá andsemítismi sem beinist gegn þeim sem eru af arabaættum. --- --- --- Í gærkvöldi sá ég á frönsku sjónvarpsstöðinni Arte kvikmynd sem heitir Osama. Hún fjallaði ekki um terroristann fræga, heldur er þetta fyrsta kvikmynd sem gerð er í Afganistan eftir fall Talibanastjórnarinnar. Þetta er einhver átakanlegasta mynd sem sem ég hef séð - svo mjög að nístir í hjartað. Hún fjallar um stúlkubarn sem lendir á vergangi eftir að móðir hennar hverfur eftir mótmælagöngu kvenna sem hafa misst eiginmenn sína og geta ekki séð sér farborða sökum þess að þær mega ekki stunda vinnu. Til að svelta ekki klæðir stúlkan sig sem strák og fer að sækja skóla. Það kemst upp um hana og hún sætir hroðalegri niðurlægingu. Að lokum er hún leidd fyrir dómara sem situr í stórum hópi illúðlegra karla. Stúlkan er reyndar sýknuð, en með því fororði að hún skuli, barnung, verða kona klerks nokkurs, afgamals karlskröggs. Myndin endar þar sem stúlkan er lokuð inni á heimili karlsins. Vonin er engin. Ég hef löngum furðað mig á því hvers vegna femínistar á Íslandi einblína ekki meira á stöðu kvenna í ríkjum íslams. Hvar er alþjóðahyggjan? Hví eru femínistar ekki að lesa bækur eftir konu eins og Ayan Hirsi Ali - eða jafnvel bjóða henni til Íslands? Skín þarna kannski enn einu sinni í gegn hinn gagnkvæmi skilningur milli íslamista og vinstri manna á Vesturlöndum sem birtist meðal annars í hinu afkáralega máli þegar deilt var um dönsku skopmyndirnar og sófakommar voru komnir í lið með þeim sem heimta ritskoðun og brenna sendiráð? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Sex ára sáttmáli Davíð Þorláksson Skoðun Skapandi menntun skilar raunverulegum árangri Bryngeir Valdimarsson Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Háskólinn á Bifröst – Öflugur og sjálfstæður fjarnámsskóli Sólveig Hallsteinsdóttir Skoðun Það eru fleiri fiskar í sjónum og fleiri sjónarmið í hafstjórn Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun