Fótbolti

Arsenal í riðlakeppnina - Ajax dottið út

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Cesc Fabregas sést hér fagna marki sínu í kvöld.
Cesc Fabregas sést hér fagna marki sínu í kvöld. NordicPhotos/GettyImages

Þriðja umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu kláraðist í kvöld ef að frá er talinn leikur AEK Aþenu og Sevilla sem var frestað vegna andláts Antonio Puerta, leikmanns Sevilla. Arsenal komst auðveldlega áfram eftir öruggan sigur á Sparta Prag en athygli vekur að Ajax datt út á móti Slavia Prag.

Tomas Rocisky skoraði strax á 7. mínútu fyrir Arsenal gegn Sparta Prag en Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 á útivelli. Cesc Fabregas og Eduardo da Silva bættu svo við mörkum undir lok leiksins og tryggðu Arsenal 3-0 sigur, samtals 5-0.

Besiktas sigraði FC Zurich 2-0 og var það Matias Delgado sem skoraði bæði mörkin. Besiktas vann því samanlagt 3-1.

Werder Bremen sigraði Dinamo Zagreb á útivelli með þremur mörkum gegn tveim. Ribas Diego skoraði tvívegis fyrir Werder Bremen og Boubacar Sanogo eitt. Ognjen Vukojevic og Luka Modric skorðu mörk Dinamo Zagreb. Werder Bremen vann fyrri leikinn 2-1 og því 5-3 samanlagt.

Benfica sigrað FC Kaupmannahöfn 1-0 á útvelli og samtals 3-1. Kostas Katsouranis skoraði mark Benfica.

Valencia sigraði IF Elfsborg 2-1 á útivelli og samtals 5-1. David Villa og Ivan Helguera skoruðu mörk Valencia en Daniel Alexandersson mark IF Elfsborg.

Slavia Prag sigraði Ajax á heimavelli með tveimur mörkum gegn einu og því samtals 3-1. Stanislav Vlcek skoraði bæði mörkin fyrir Slavia Prag en Luis Suarez skoraði fyrir Ajax.

Steaua Búkarest sigraði FC Bate 2-0 á heimavelli og samals 4-2. Dorel Zaharia og Adrian Neaga skoruðu mörkin fyrir Steaua. FC Bate er liðið sem sló FH út í 2. umferð keppnarinnar.

Celtic sló Spartak Moscow út eftir vítaspyrnukeppni, en staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Bæði lið misnotuðu vítaspyrnu á meðan leikurinn var í gangi. Scott McDonald skoraði mark Celtic en Roman Pavluchenko mark Spartak Moscow.

Að lokum tryggði Rosenborg sér sæti í riðlakeppninni með því að leggja Tampere af velli á heimavelli með tveimur mörkum gegn engu, 5-0 samanlagt. Marek Sapara og Didier Konan skoruðu mörkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×