Dorgað á ísnum í höfuðborginni 27. mars 2008 06:00 Anna Kvaran og Wolfgang Pomorin staðarhaldari dorga úti á miðju vatni. Fréttablaðið/Valli
Reynisvatn er rétt við Grafarholtið í Reykjavík. Reynisvatn er tilvalinn staður fyrir alla fjölskylduna að fara saman og prófa ísdorg og njóta útivistar. Á Reynisvatni er frábær aðstaða fyrir veiðimenn og aðra áhugamenn til að njóta náttúrunnar. Hjá Reynisvatni er gott veiðihús og kaffistofa sem selur léttar veitingar. Þar er að finna allt sem til þarf til þess að renna fyrir fisk. Tjald er á staðnum sem hægt er að leigja út og þá eru það aðallega stærri hópar sem vilja halda gleði og hefur aðsóknin verið mikil. Yfir vetrartímann er opið um helgar þegar veður leyfir í ísdorg. Yfir dimmustu mánuðina er minna að gera en þó alltaf einhverjir sem stunda ísdorg á vatninu. Á sólardögum koma margir til að dorga. Drjúgt er af fiski í vatninu, allt frá tveggja punda fiski upp í fimmtán punda. Fólk getur komið með eigin stangir en einnig eru leigðar út stangir og annað sem þarf til veiðar. Starfsmenn Reynisvatns sjá um að bora göt í ísinn fyrir gesti og velja góða veiðistaði þar sem fiskurinn bítur á. Frá og með fyrsta apríl verður opið frá morgni til kvölds. Margir stunda útiveru í kringum vatnið enda tilvalið svæði til útivistar. Veiðihúsið hefur verið gert upp og er aðstaðan til fyrirmyndar. - mmr
Mest lesið Laxveiðileyfi undir 20 þúsund krónum Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Zeldan er einföld en gjöful fluga Veiði Tók fyrsta laxinn sinn í Elliðaánum Veiði Mús í Urriðamaga Veiði Ágæt veiði við Hraun í Ölfusi Veiði 100 sentímetra lax í Selá; Góð opnun í Hofsá Veiði Núna er tíminn til að fara á kastnámskeið Veiði Rjúpnaveiðin búin þetta árið Veiði Vaxandi veiði á sjóbirting í Eyjafjarðará Veiði