Skyldi pínast ævinlega í helvíti 9. apríl 2008 00:01 Sýn fimmtándu aldar málara á helvíti. Á miðöldum gaf fólk til kirkna til þess að þakka fyrir bænheyrslu og komast hjá helvítisvist. Nordicphotos/Getty Images „
Það eru mismunandi ástæður fyrir því að jarðir komust í eigu kirkjunnar og líka mismunandi eftir tímabilum,“ segir Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands. Hann bendir á að stærstu eignir kirkjunnar, biskupsstólarnir og fleiri sögufrægar jarðir, hafi komist í eigu kirkjunnar þegar á 12. öld eða jafnvel fyrr. „Eignir hafa líka verið gefnar einstökum kirkjum,“ segir Hjalti en bendir á að vafi gæti leikið á hver ætti í raun kirkjurnar, guð eða tilteknir verndardýrlingar sem þeim voru tileinkaðar í kaþólskum sið. „Þá eru dæmi um að höfðingi hafi gefið kirkjunni höfuðból sitt en farið sjálfur með ráðstöfun eignanna. Þannig má segja að menn hafi komist undan því að greiða tíundina, en kannski var tilgangurinn líka að efla kirkjuna eða jafnvel koma í veg fyrir að eignir skiptust til mismunandi erfingja, enda þótt jörð hafi verið á forræði sömu fjölskyldunnar í marga ættliði.“ Hjalti segir að einnig séu dæmi um að eignir hafi verið færðar kirkjunni í þakkarskyni fyrir bænheyrslu. Þá sé algengt að fólk hafi viljað minnast kirkjunnar í erfðaskrám. „Þá hafði kirkjan dómsvald hér áður fyrr og dæmi eru um að henni hafi verið dæmdar jarðir.“ Þjóðkirkjan vísar til þess á heimasíðu sinni í starfsreglum um kirkjur og safnaðarheimili, frá árinu 2000, að verði ágreiningur um fornar eignir og réttindi kirkna skuli leggja ýmsar gamlar skrár til grundvallar dómsmálum. Þeirra á meðal eru máldagabækur frá 14. og 15. öld, auk síðari heimilda. Þá ríkti töluvert annar skilningur á heiminum en nú tíðkast. Til dæmis hræddust menn guð og helvítisvist, eða óhjákvæmilega dvöl í hreinsunareldi, að lífinu loknu. Í skrá um aflát og syndaaflausnir frá því um 1500 er meðal annars þessi kafli: „Nær sem nokkur maður hefur iðran og viðurkomning fyrir sínar syndir og gengur til skripta með þeirri hugsan og fullkomnum vilja að falla eigi aftur í dauðlegar syndir sjálfviljandi heldur betra sitt umliðið líf, þá fær sá maður aflátið ef hann sækir þá staði sem aflátið er til gefið. Þó að hann skyldi pínast ævinlega í helvíti þá vill guð gefa sína náð til og snúa þeirri ævinlegri pínu í stundlega pínu hverja þeir fá sem rétt gjöra sín skriptamál. […], því svo mikið styttir hans pínu sem hann sækir aflátið til og eingin er sá lifandi að kunna að greina, undirstanda eða vita hvað dygð aflátið hefur eða hversu dýrt og gott er það er fyrr en eftir dauðann og hann kemur í hreinsunareldinn og hann fer þaðan. Þá reynir hann hvað aflátið dugir og hvað hann hefur aflað.“ Fólk gaf enda stofnunum kirkjunnar eignir og gjafir sér til sáluhjálpar. Dæmi er frá 1470 um að maður hafi gefið kirkju og klerkum ýmsar sínar eignir á banastund. „Svo og skipa ég að láta syngja sálumessu engelskum er slegnir voru í Grindavík af mínum mönnum.“ En stundum vottuðu gjafirnar engir nema kirkjunnar þjónar: Árið 1460 vottar prófastur að maður hafi á banabeði gefið kirkjunni í Vatnsfirði jarðirnar Hálshús, Voga, Miðhús og hálfa Eyri þar í sókninni. 1488 votta tveir prestar að karl nokkur afleiddi kirkjuna að hálfri jörð. Árið 1499 votta tveir prestar að Árni nokkur hafi arfleitt kirkjuna að jörð. Svo segja prestar: „Heyrðum við áður nefndan Árna Guðmundsson ekki til leggja þar um fleiri orð eður leggja nokkra þvingan upp á kirkjuna í Holti fyrir áður greinda jörð.“ Þá eru einnig dæmi um að fólk hafi greitt kirkjunni sektir. Þá var Runólfur Höskuldsson árið 1471 dæmdur til að láta jarðirnar Skollatungu, Brattavöllu og Hornbrekku til kirkjunnar „fyrir allt það hórdæmi er hann hefur í fallið með Halldóru Þórðardóttur og Þórdísi Guðmundardóttur“. Runólfur lét sér raunar ekki segjast við þetta og var síðar gripinn með þeirri fyrrnefndu þar sem hann lá „nakinn undir einum klæðum hjá henni í kirkjunni á Bakka“. Árið 1505 tók Stefán Skálholtsbiskup jörðina í Köldukinn í Marteinstungu kirkjusókn og Kolbeinsey í Þjórsá, af Helgu Guðnadóttur, vegna misfara látins bónda hennar. Árið 1474 setur Jón Broddason, prestur og officialis generalis vikaríus á Hólum, Solveigu Þorleifsdóttur út af heilagri kirkju, meðal annars fyrir að halda mann sem var úrskurðaður í bann, auk óhlýðni og þrjósku við guð, heilaga kirkju og sig. Fimm árum síðar greiðir Solveig biskupnum tíu tigi hundraða fyrir manninn í banninu. Sama ár votta tveir prestar að hún hafi á banastund gefið biskupnum jörðina Flatatungu í Skagafirði. Svo eru önnur dæmi, eins og þetta: „Þá dæmum vér oftnefnda jörð Vallholt óbrigðilega eign heilagrar Hólakirkju.” Svo dæmdi biskup sjálfum sér en hann og eigandi jarðarinnar höfðu átt í nokkrum viðskiptum. Rétt er að taka fram að þótt Markaðurinn hafi grafið þessi dæmi upp í fornbréfasafni verður ekkert fullyrt um hvort kirkjan hafi á sínum tíma eignast þessar jarðir með óvönduðum aðferðum, á þessa eða liðinna tíma mælikvarða. Né heldur hvort jarðirnar sem nefndar eru í dæmunum séu hluti af höfuðstól þjóðkirkjunnar nú.
Undir smásjánni Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira