Fótbolti

Mourinho fundaði með forseta Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea.
Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Jose Mourinho sást í gærkvöldi í París þar sem hann fundaði með Massimo Moratti, forseta Inter.

Mourinho hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Inter síðan að Roberto Mancini sagðist ætla að hætta í mars en hætti svo skyndilega við.

„Þetta verður áskorunin sem allir hafa rætt um," sagði Mourinho við Jornal de Negocios í heimalandi sínu. „Mér er sagt að ég verði að vinna þarna. Þessar væntingar eru gerðar til mín og líkar mér það. Ég mun finna fyrir miklum þrýstingi í mínu starfi. Það er hins vegar í slíkum aðstöðum sem ég styrkist."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×