Fótbolti

Tiago Mendes flopp tímabilsins

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tiago í faðmi félagana.
Tiago í faðmi félagana.

Kaup Juventus á Tiago Mendes voru verstu kaup tímabilsins samkvæmt atkvæðagreiðslu meðal ítalskra netnotenda. Það voru miklar væntingar gerðar til portúgalska landsliðsmanninn sem keyptur síðasta sumar en hefur alls ekki staðið undir væntingum.

Tiago var virkilega slakur fyrri hluta tímabils en frammistaða hans síðustu mánuði hefur þó verið skömminni skárri.

Markvörðurinn Fernando Muslera hjá Lazio hafnaði í öðru sæt í kjörinu en hann hefur gert mörg afdrifarík mistök. Argentínski sóknarmaðurinn Joaquin Larrivey tók þriðja sætið.

Topp 10 listinn:

1. Tiago Mendes (Juventus)

2. Fernando Muslera (Lazio)

3. Joaquin Larrivey (Cagliari)

4. Diego Tristan (Livorno)

5. Alvaro Recoba (Torino)

6. Mauro Esposito (Roma)

7. Emerson (Milan)

8. Sergio Almiron (Juventus)

9. Rolando Bianchi (Lazio)

10. Cristiano Lucarelli (Parma)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×