Fótbolti

Mourinho: Get ekki beðið eftir að byrja

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jose Mourinho, gæti verið á leiðinni til Inter.
Jose Mourinho, gæti verið á leiðinni til Inter. Nordic Photos / AFP

Gazzetta dello Sport hefur eftir Jose Mourinho í dag að hann sé afar spenntur fyrir nýja starfinu sínu hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Inter.

„Ég get ekki beðið eftir að byrja," hefur blaðið eftir Mourinho sem mun hafa tjáð vinum sínum að hann ætli sér að breyta hefðbundnum undirbúningi fyrir næsta keppnistímabil. „Fyrsta æfingin verður frábær. Það verður frábært að geta æft leikskipulag og eytt minni tíma í ræktinni og á ferðalögum. Ég vil breyta hefðbundnum aðferðum við undirbúninginn."

Í gærkvöldi staðfesti umboðsmaður Roberto Mancini, núverandi knattspyrnustjóra Inter, að hann væri á leið frá félaginu og að Mourinho myndi taka við stöðu hans.

Ef það reynist rétt er búist við að þetta verði staðfest á allra næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×