Ford slær fyrri met 29. maí 2008 06:00 Harrison Ford getur ekki verið annað en sáttur með niðurstöðurnar úr miðasölunni því fjórða myndin um Indiana gæti orðið vinsælasta kvikmynd hans frá upphafi.
Þrátt fyrir að Harrison Ford hafi leikið í mörgum af vinsælustu kvikmyndum sögunnar þá stefnir allt í að fjórða myndin um Indiana Jones verði sú vinsælasta hingað til ef marka má fyrstu frumsýningarhelgina. Ford tókst ekki að slá met sjóræningjahers Jerrys Bruckheimer en getur unað sáttur við sitt. Myndin er sú vinsælasta á heimsvísu og ef að líkum lætur gæti hún orðið vinsælasta kvikmyndin í sögu Indiana Jones-mynda. Önnur Narníu-myndin um prinsinn Kaspían náði engan veginn að trufla velgengni Indiana og varð að láta sér lynda annað sætið, rétt komst upp fyrir Iron Man en vinsældum þeirrar myndar virðast engin takmörk sett. Hins vegar er það ekki bara velgengni fornleifafræðingsins sem vekur athygli því Speed Race, nýjasta afrek Wachowski-bræðra, heillaði fáa upp úr skónum. Þrátt fyrir að vera hlaðin tæknibrellum og flottum tökum þá virðast bræðurnir hafa gleymt að góð kvikmynd þarf víst líka að hafa skiljanlegan söguþráð. Þeim til mikillar skelfingar héldu Cameron Diaz og Ashton Kutcher sínu striki með hinum óvænta smelli What Happens in Vegas og stungu kappakstursmyndinni ref fyrir rass.
Mest lesið Julian McMahon látinn Lífið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira