Fótbolti

Mancini er miður sín

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.

Stjórnarmaður hjá Inter, Gabriele Oriali, segir að Roberto Mancini eigi mjög erfitt með að sætta sig við að hafa verið látinn taka pokann sinn hjá félaginu. Mancini er víst niðurbrotinn maður um þessar mundir.

Mancini bjóst við að haldast í starfi eftir að hafa stýrt Inter til Ítalíumeistaratitils á nýliðnu tímabili. Ummæli hans eftir að liðið féll úr keppni í Meistaradeildinni reyndust honum dýrkeypt.

Oriali og Mancini sáust saman úti að skokka um daginn en þeir tveir eru nánir vinir. „Við fórum saman að skokka svo hann gæti hreinsað hugann. Ég hef aldrei verið eins náinn nokkrum þjálfara," sagði Oriali sem vill þó ekki tjá sig um hvort hann telji það hafa verið mistök að reka Mancini.

Jose Mourinho er tekinn við þjálfun Inter eins og flestir vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×