Óvæntur sigur Hauka í Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2008 21:50 Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 23 stig fyrir Hauka í kvöld. Mynd/E. Stefán
Iceland Express deild kvenna hófst í kvöld með fjórum leikjum. Óvæntustu úrslitin voru í Keflavík þar sem Haukar unnu góðan fimm stiga sigur. Þá vann KR góðan sigur í Grindavík, 73-63 en þessum fjórum liðum var spáð efstu fjórum sætunum í vetur. Keflavík efsta sætinu og KR öðru sæti. Valur vann Fjölni í Grafarvoginum, 72-46, og Hamar vann öruggan sigur á Snæfelli á heimavelli, 83-59. Haukar byrjuðu betur í leiknum en höfðu einungis eins stiga forystu í hálfleik, 34-33. Spennan hélst svo áfram í þriðja leikhluta en Haukar náðu svo undirtökunum í lokaleikhlutanum, þó svo að Keflvíkingar hafi aldrei verið langt undan. Lokatölur voru 65-60, Haukum í hag. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 23 stig fyrir Hauka og Slavica Dimovska 21. Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir stigahæst með nítjan stig en Birna Valgarðsdóttir skoraði tólf. Grindvíkingar voru með yfirhöndina í hálfleik gegn KR, 33-31, en KR-ingar tóku svo völdin í síðari hálfleik og fögnuðu að lokum tíu stiga sigri. Þar var Hildur Sigurðardóttir stigahæstu með 21 stig og Sigrún Sjöfn Ámundardóttir kom næst með sautján. Jovana Stefánsdóttir skoraði sextán stig fyrir Grindavík og Ólöf Helga Pálsdóttir tólf. Í Hveragerði fór Kiki Barkus mikinn í liði Hamars með 34 stig en Detra Ashley skoraði sextán stig fyrir Snæfell.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira