Vissi að ég ætti eftir að eiga stórleik í kvöld 16. apríl 2008 21:21 Gunnar Einarsson hlakkar mikið til að mæta Snæfelli í úrslitunum Mynd/Vilhelm "
Við bara rifum okkur upp á rassgatinu og gerðum þetta eins og karlmenn núna," sagði Gunnar Einarsson, hetja Keflvíkinga í oddaleiknum í kvöld. Gunnar var stigahæstur Keflvíkinga með 23 stig, hitti vel og dreif sína menn áfram á báðum endum vallarins. Í viðtali við Stöð 2 Sport eftir leikinn sagðist hann blása á fréttir af óeiningu í herbúðum liðsins. "Það er bara bull. Það er flottur mórall í þessu liði og gaman að koma á hverja einustu æfingu," sagði Gunnar. Hann segir Keflavíkurliðið hafa lagt upp með ranga hernaðaráætlun gegn ÍR í upphafi einvígisins. "Við vorum að spila vitlaust á þá þarna í byrjun og spila svæðisvörn, en við skiptum alveg í maður á mann í síðustu þremur leikjunum og árangurinn liggur í augum uppi," sagði Gunnar. Hann segir stemminguna í Sláturhúsinu í kvöld hafa verið rafmagnaða fyrir leikinn og sagðist hafa fundið í hvað stefndi. "Ég fann það um leið og ég gekk inn í húsið í kvöld að ég ætti eftir að eiga stórleik. Þetta var bara einn af þessum dögum þar sem allt er ofaní. Siggi sýndi mér traust í síðustu þremur leikjum og ég er enn í fullu fjöri - þið sáuð hvernig það fór í kvöld," sagði Gunnar brattur.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira