Körfubolti

Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Natasha Cloud (til vinstri) gagnrýndi þá sem köstuðu kynlífsleikföngum inn á völlinn í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries.
Natasha Cloud (til vinstri) gagnrýndi þá sem köstuðu kynlífsleikföngum inn á völlinn í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries. getty/Michael Reaves

Gera þurfti hlé á leik Chicago Sky og Golden State Valkyries í WNBA-deildinni eftir að kynlífsleikföngum var kastað inn á völlinn. Þetta er í annað sinn í vikunni sem þetta gerist.

Í 3. leikhluta í leik Sky og Valkyries í gær var nokkrum kynlífsleikföngum kastað inn á gólfið.

Natasha Cloud, leikmaður Sky, sagði að þeir sem framkvæmdu þennan gjörning væru furðulegir og asnalegir í þokkabót.

„Þetta segir meira um baráttuna innra með þessum einstaklingi en það mun nokkrum sinnum segja um hópinn,“ sagði Cloud.

„Mennirnir sem gera þetta eru aumir, gríðarlega aumir. Og þetta segir mikið um hvaða augum þú lítur konur.“

Þetta gerðist einnig í viðureign Atlanta Dream og Los Angeles Sparks í fyrradag. Þá var kynlífsleikfangi kastað inn á völlinn í 3. leikhluta þegar Park Ji-hyun, leikmaður Sparks, bjó sig undir að taka vítaskot. Maðurinn sem kastaði kynlífsleikfanginu inn á völlinn hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá WNBA.

Á síðasta tímabili komu sex svipuð atvik upp í leikjum í WNBA.

Hópurinn sem lýsti þessu á hendur sér sagðist myndu halda áfram að trufla leiki í WNBA til að mótmæla stefnu deildarinnar varðandi trans íþróttafólk.

Engar trans konur eru í WNBA en umræðan um þær hefur verið áberandi að undanförnu, sérstaklega eftir ummæli Sophies Cunningham, leikmanns Indiana Fever. Hún er mótfallin þátttöku trans íþróttafólks í kvennaflokki.

„Ég vil verja ungar stúlkur í búningsklefanum og í íþróttum sem eiga ekki að þurfa að keppa við karla. Ég var spurð spurningar og það var bara þannig. Ég var ekki að reyna að koma með yfirlýsingu,“ sagði Cunningham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×