Fótbolti

Inter neitar sögum um Mourinho

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.

Massimo Moratti, forseti Inter, hefur neitað þeim sögusögnum að félagið sé búið að ná samkomulagi við Jose Mourinho um að hann taki við stjórnartaumum liðsins í sumar.

„Ég er ekki með tölu á því hvað ég hef heyrt þessa sögu oft að undanförnu. Hún er ekki sönn og fátt meira um það að segja," sagði Moratti.

Þrátt fyrir að Inter færist nær Ítalíumeistaratitlinum er framtíð Roberto Mancini í mikilli óvissu enda var helsta markmið tímabilsins að landa Meistaradeildartitlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×