Hvað segir sagan um úrslitin í oddaleiknum í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2008 16:45 Það verður án efa frábær stemning í Sláturhúsinu í kvöld. Mynd/Vilhelm
Keflavík og ÍR mætast í kvöld í fimmta og úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Iceland Express deildar karla og hefst leikurinn klukkan 19.15 í Toyota-höllinni í Keflavík. Þetta verður 24. oddaleikurinn um sæti í lokaúrslitum í sögu úrslitakeppninnar og í tilefni á því höfum við tekið saman hvernig liðum í sömu aðstöðu og Keflavík og ÍR hefur vegnað í þessum leik upp á líf og dauða. Lið í sömu stöðu og Keflavík hefur gengið vel og unnið yfir 60 prósent leikja sinna. Þar er talað um þau lið sem hafa verið á heimavelli (65 prósent árangur), hafa unnið deildarmeistaratitilinn (65 prósent árangur), eða unnu síðasta leik á undan í einvíginu (60 prósent árangur). Í þremur af síðustu fjórum oddaleikjum um sæti í einvíginu um titilinn þá hafa liðin sem hafa unnið fjórða leikinn unnið fimmta leikinn. Það eru meiri sveiflur í gengi liða í sömu stöðu og ÍR-ingar eru nú. Þar sker sig verulega út að þau lið sem hafa þegar spilað oddaleik í úrslitakeppnini eins og ÍR gerði í átta liða úrslitum hafa unnið 6 af 7 oddaleikjum sínum í undanúrslitunum. Það hefur aftur á móti gengið illa hjá liðum sem eru á útivelli í oddaleiknum og hafa þegar unnið einn útileik í seríunni en aðeins 2 af 6 þeirra liða hafa komist í úrslitin. ÍR vann einmitt fyrsta leikinn í Keflavík en 65 prósent þeirra liða sem hafa komst í 1-0 í seríunni hafa farið í lokaúrslitin eftir sigur í oddaleiknum. Sigurhlutfall í oddaleikjum um sæti í lokaúrslitum: Heimalið (Keflavík): 15-8, 65% Deildarmeistari (Keflavík): 5-2, 65% Lið sem endaði í 7. sæti (ÍR): Fyrsta skipti Sigurvegari fjórða leiksins (Keflavík): 6-4, 60% Lið sem var í oddaleik í 8 liða úrslitum (ÍR): 6-1, 86% Lið sem komst í 1-0 í seríunnni (ÍR): 15-8, 65% Útilið sem er búið að vinna útileik í seríunni (ÍR): 2-4, 33%
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira