Örlög guðanna í myndum 6. september 2008 03:00 Gullveig brennd Ein af myndskreytingum Kristínar Rögnu úr bókinni Örlög guðanna.
Sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur fyrir barnabókina Örlög guðanna, sem kom út fyrir hálfum mánuði á vegum Máls og menningar, verður opnuð í Þjóðminjasafninu í dag kl. 14. Bók þessi, sem er samstarfsverkefni myndskreytisins Kristínar og Ingunnar Ásdísardóttur sem skrifar textann, setur fram allar helstu sögur af norrænum goðum og gyðjum á þann hátt að bæði börn og fullorðnir geta haft gagn og gaman af. Á opnuninni í dag verður ýmislegt skemmtilegt um að vera. Ingunn les upp úr bókinni og myndir Kristínar verða til sölu, auk þess sem höfundarnir munu árita bækur sínar. Alls verða rúmlega tuttugu myndir til sýnis sem sýna ýmis þekkt andartök eða hugmyndir úr heimi norrænnar goðafræði, til að mynda sköpunina, söguna af Iðunni og eplunum, sögurnar af dauða og bálför Baldurs, heimstrénu Aski Yggdrasils og svona mætti áfram telja. Sýningin hangir uppi til 21. september og er aðgangur ókeypis.- vþ
Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira