Kvennakórar heiðra Jón 29. nóvember 2008 06:00 Jón Ásgeirsson hefur samið lag við ljóð Snorra Hjartarsonar Ég heyri þau nálgast. MYND/Hilmar Þ. Guðmundsson
Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu og þá munu nokkrir kvennakórar víðs vegar af landinu frumflytja jólalagið Ég heyrði þau nálgast, eftir tónskáldið Jón Ásgeirsson. Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra, fékk Jón Ásgeirsson til að semja jólalag fyrir kvennakóra landsins, í tilefni af áttræðisafmæli hans hinn 11. október og heiður er að fá að flytja lagið nú á afmælisári hans. Textinn við lagið er eftir Snorra Hjartarson. Verður þessi nýi sálmur fluttur af átta kórum í átta krikjum á morgun. Fyrir 1990 voru ekki nema fimm kvennakórar starfandi á landinu. Gróskan hefur verið mikil síðan þá og á stofnfundi Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra, 5. apríl 2003 gengu 17 kórar í sambandið. Í dag eru aðildarkórar sambandsins 28 talsins og telja meðlimir þess á annað þúsund konur. Tónverkasjóður Gígjunnar var stofnaður á aðalfundi sambandsins í október. Markmið og tilgangur Tónverkasjóðsins er að efla og styrkja íslenska kvennakóra. Til að ná þessu markmiði mun Tónverkasjóður Gígjunnar fá tónskáld til að semja tónverk fyrir kvennakóra landsins og þannig efla fjölbreytni og úrval tónlistar sem kvennakórar eiga kost á að flytja. Jólalag Jóns Ásgeirssonar er fyrsta verkið sem Tónverkasjóðurinn hefur kostað. - pbb
Mest lesið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ Lífið Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira