Fótbolti

Cannavaro ekki með á EM

Elvar Geir Magnússon skrifar
Fabio Cannavaro.
Fabio Cannavaro.

Varnarmaðurinn Fabio Cannavaro þurfti að yfirgefa völlinn á börum á æfingu ítalska landsliðsins í dag. Þetta var fyrsta æfing ítalska liðsins í Austurríki en Evrópumótið hefst um komandi helgi.

Cannavaro er fyrirliði ítalska liðsins og meiddist hann á ökkla eftir viðskipti við Giorgio Chiellini. Allt útlit er fyrir að hann verði því ekki með á Evrópumótinu.

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir ítalska liðið en Cannavaro átti frábært mót á HM fyrir tveimur árum. Líklegt er að Alessandro Gamberini taki sæti hans í ítalska hópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×