Fótbolti

AC Milan reynir við Eto'o

Elvar Geir Magnússon skrifar
Samuel Eto'o.
Samuel Eto'o.

Ítalska liðið AC Milan hefur staðfest að sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé helsta skotmark þess á leikmannamarkaðnum í sumar. AC Milan hefur verið sterklega orðað við Ronaldinho, félaga hans hjá Barcelona, en Carlo Ancelotti vill frekar fá Eto'o.

Sagan segir að verðmiði Barcelona á Eto'o sé himinhár og óvíst hvort AC Milan sé tilbúið að reiða fram þá upphæð.

„Við horfum líka til Ronaldinho en hann er ekki hreinræktaður sóknarmaður. Það er sú gerð af leikmanni sem við þurfum helst," sagði Adriano Galliani, stjórnarformaður AC Milan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×