Fótbolti

Ég er betri en Mascherano

Nordic Photos / Getty Images

Miðjumaðurinn Momo Sissoko hjá Juventus segist vera betri leikmaður en fyrrum félagi hans Javier Mascherano hjá Liverpool.

Juventus var á sínum tíma á höttunum eftir bæði Sissoko og Masherano, en splæsti 13 milljónum evra í Sissoko. Stuðningsmenn Juventus voru margir hverjir ósáttir við þessa niðurstöðu og vildu frekar fá Masherano. Sissoko hefur nú svarað þessu fullum hálsi.

"Ég er kominn hingað til að vinna titla og ég er betri leikmaður en Mascherano - treystið mér," sagði Sissoko í samtali við Tuttosport, en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Juve í síðustu viku þegar hann kom inn sem varamaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×