Fótbolti

Ronaldo íhugar að hætta

Elvar Geir Magnússon skrifar
Síðasta tímabil Ronaldo?
Síðasta tímabil Ronaldo?

Fjölmiðlar í Brasilíu segja að sóknarmaðurinn Ronaldo hjá AC Milan sé að íhuga að hætta knattspyrnuiðkun. Ástæðan eru þrálát meiðsli sem á hann hafa herjað.

Þessi 31. árs leikmaður, sem eitt sinn var sá besti í heimi, byrjaði yfirstandandi tímabil á meiðslalistanum. Hann fór til Brasilíu í aðgerð en það skapaði óánægju hjá sjúkraþjálfurum AC Milan.

Hann fór síðan aftur að spila en meiddist enn og aftur um helgina og missir af næstu leikjum AC Milan. Samningur hans við félagið rennur út næsta sumar og er framtíð hans í óvissu. Sérstaklega í ljósi þess að yngri leikmenn hjá liðinu hafa gripið gæsina í hans fjarveru.

Ronaldo er orðinn langþreyttur á meiðslavandræðum sínum og íhugar að leggja skóna á hilluna samkvæmt sterkur orðrómi í Brasilíu. Það eru þó einnig getgátur um að hann haldi heim til Brasilíu og klári ferilinn með Flamengo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×