Fótbolti

Ronaldo: Kemur til greina að hætta

Nordic Photos / Getty Images

Brasilíski framherjinn Ronaldo segir alls ekki útilokað að hann leggi skóna á hilluna eftir að hann meiddist illa á hné í leik með AC Milan fyrir hálfum mánuði.

Hinn 31 árs gamli Ronaldo hafði átt í miklum vandræðum með að halda heilsu og formi og margir slógu þvi föstu að ferill hans væri á enda þegar ljóst var að hann yrði frá keppni í hátt í ár vegna hnémeiðslanna.

"Ég verð að vera viðbúinn þeim möguleika að þurfa að hætta," sagði Ronaldo í sjónvarpsviðtali í heimalandi sínu. "Ég veit að það verður ekki auðvelt að koma til baka eftir þessi meiðsli og lítið þarf útaf að bera svo ég geti aldrei spilað aftur. Ég útiloka ekki endurkomu, en ef ég finn til á hverjum degi þarf ég að hugsa málið vandlega. Ég vil geta leikið mér við son minn í framtíðinni," sagði Ronaldo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×