Fótbolti

Jú annars, kallið mig Keisarann

AFP

Framherjinn Adriano hefur farið þess á leit við fjölmiðlamenn í Brasilíu að byrja aftur að kalla sig Keisarann. Hann baðst undan því að vera kallaður gamla gælunafninu þegar hann kom til Sao Paolo sem lánsmaður fyrr í vetur, en vill nú taka það upp á ný.

Hann lýsti því yfir þegar hann kom sem lánsmaður hjá Inter að hann þyrfti að vinna fyrir því að vera kallaður Keisarinn á ný, en nú hefur honum snúist hugur. "Kallið mig bara Keisarann. Ég á það skilið vegna þess sem ég hef afrekað á ferlinum," sagði Adriano.

Til þessa hefur hann reyndar verið duglegri við að koma sér í vandræði fyrir agabrot og fyrir helgina hótuðu forráðamenn félagsins að reka hann eftir að hann mætti of seint á æfingu og rauk síðan heim í fýlu áður en henni lauk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×