Fótbolti

Emil kominn með sinn þriðja þjálfara hjá Reggina

Elvar Geir Magnússon skrifar
Renzo Ulivieri var látinn taka pokann sinn í morgun.
Renzo Ulivieri var látinn taka pokann sinn í morgun.

Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er kominn með sinn þriðja þjálfara á fyrsta tímabili sínu hjá Reggina á Ítalíu. Félagið rak í morgun Renzo Ulivieri og réð í hans stað fyrrum unglingaþjálfarann Nevio Orlandi.

Ulivieri tók við liðinu í nóvember en tókst ekki að koma liðinu úr fallsæti þrátt fyrir góða byrjun. Markalaust jafntefli gegn Palermo á sunnudag gerði útslagið. Ulivieri er áttundi þjálfarinn sem fær að taka pokann sinn á tímabilinu.

Reggina er í næstneðsta sæti A-deildarinnar á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×