Fótbolti

Pele hefur alltaf rangt fyrir sér

Elvar Geir Magnússon skrifar
Pele og Ronaldo á góðum tíma.
Pele og Ronaldo á góðum tíma.

Brasilíska goðsögnin Pele hefur sagt að landi sinn Ronaldo verði aldrei sami leikmaðurinn. Ferill Ronaldo er í hættu eftir að hann meiddist illa á hné í leik AC Milan gegn Livorno í febrúar.

Pele býst ekki við því að Ronaldo muni spila fótbolta aftur. „Ég er mjög ánægður með þessi ummæli hans því hann hefur alltaf rangt fyrir sér," sagði Ronaldo aðspurður með bros á vör.

„Pele hefur aldrei verið talinn góður spámaður. Það sem hann spáir rætist nánast aldrei. Ég er alls ekki reiður vegna þessara orða hans. Pele er lifandi goðsögn og er alltaf spurður út í ýmis mál. Stundum á hann erfitt með að svara spurningum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×