Fótbolti

Zlatan bað Mancini afsökunar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.

Roberto Mancini, þjálfari Inter, segir að sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimoviv hafi beðið sig afsökunar. Zlatan brást illa við að hafa verið tekinn af velli í 2-1 sigrinum á Palermo.

„Ég vildi óska þess að þú hefðir hætt," á Zlatan að hafa sagt við Mancini þegar hann gekk af velli. Í síðustu viku hótaði Mancini að hætta hjá félaginu en dró þau orð sín síðan til baka.

Zlatan neitaði þessu opinberlega en hefur allavega fundið einhverja ástæðu til að biðjast afsökunar.

„Það er allt í himnalagi milli okkar. Ibrahimovic leggur sig alltaf fram af lífi og sál. Hann hefur beðið mig afsökunar persónulega. Það er sífellt að gerast í fótboltanum að menn bregðast illa við að vera teknir af velli," sagði Mancini sem segist sjálfur þekkja þetta frá því hann var leikmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×