Viðskipti erlent

Faðir Netsins boðar nýtt IP-tölukerfi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Vinton Cerf, faðir Netsins.
Vinton Cerf, faðir Netsins. MYND/Theage.com

Maðurinn sem nefndur hefur verið faðir Netsins varar nú við því að svokallaðar IP-tölur séu farnar að verða af skornum skammti og taka þurfi upp nýtt kerfi.

Vinton Cerf er maðurinn á bak við hinn svokallaða IP/TCP-staðal sem öll netumferð byggist á. IP-tala tölvu, eða Internet Protocol, er notuð til að tilgreina staðsetningu hennar á Netinu og er að mörgu leyti keimlík kennitölum einstaklinga nema hvað hún hefur meira með staðsetningu að gera og líkist ef til vill húsnúmeri eða símanúmeri á Netinu.

Þessar tölur eru nú farnar að verða af skornum skammti segir Cerf og líkir ástandinu við það er bæta þurfi staf eða stöfum við símanúmer til að hægt sé að bæta við fleiri notendum. Auðvitað er framkvæmdin þó flóknari á Netinu. IP-staðallinn er í grunninn frá árinu 1977 og þá voru 4,2 milljarðar IP-talna til skiptanna. Nú er fyrirsjáanlegt að þær verði uppurnar árið 2010 og er því unnið hörðum höndum að þróun nýs staðals. Líklegt er að fyrir valinu verði IPv6-staðallinn svonefndi en hann nota Japanir meðal annars til að senda boð frá jarðskjálftanemum til tölva.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×