Enski boltinn

Milito á leið til Englands?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Diego Miilto fagnar marki í leik með Genoa.
Diego Miilto fagnar marki í leik með Genoa. Nordic Photos / Getty Images
Umboðsmaður Diego Milito er nú staddur á Englandi þar sem hann á í viðræðum við nokkur félög úr ensku úrvalsdeildinni.

Argentínumaðurinn Milito hefur lengi verið orðaður við bæði Manchester City og Tottenham sem bæði reyndu að kaupa hann síðastliðið sumar.

Milito ákvað hins vegar að fara aftur til síns gamla félags, Genoa á Ítalíu, þegar hann fór frá Real Zaragoza á Spáni á síðasta tímabili.

Inter er reyndar einnig orðað við Milito en umboðsmaður hans, Fernando Hidalgo, staðfesti að hann væri nú í Lundúnum þar sem hann ætti í viðræðum við nokkur félög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×